Ábyrgar fiskveiðar


Ögurvík vinnur að því á vettvangi Fiskifélagsins að koma á vottun um ábyrgar veiðar úr helstu nytjastofnum við Ísland. Byggt verður á leiðbeiningareglum FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, og óháður aðili verður fenginn til að votta veiðarnar.

Kaupendum sjávarafurða skiptir máli að kaupin byggist á veiðum sem stundaðar eru með sjálfbærum og ábyrgum hætti og að þeim sé stjórnað á vísindalegum grunni. Ögurvík vinnur eftir þessu og það er liður í stefnu fyrirtækisins að viðskipti þess séu metin útfrá þessum gildum.

Ögurvík er annt um orðspor sitt á sviði fiskveiðistjórnunar. Við viljum sýna kaupendum að við veiðum með ábyrgum og sjálfbærum hætti. Slíkt skiptir sífellt meira máli fyrir sjávarútveg Íslendinga því að fyrirtæki og neytendur sem kaupa íslenskan fisk víða um heim gera síffellt meiri kröfu um að það sé vottað og staðfest að veiðarnar séu sjálfbærar og umhverfisvænar.

Ögurvík tekur ekki þátt í framleiðslu eða sölu afurða fisktegunda í útrýmingarhættu né verndaðra tegunda skv. löggjöf þjóða og alþjóðastofnana sem íslendingar eru aðilar að. Þetta gildir um allar veiðar fyrirtækisins.

„„Fiskifélagið hefur í framhaldinu unnið frekar í þessum málum og mun vonandi fyrir árslok hafa tilbúna staðla, sem gera framleiðendum sjávarafurða kleift að fá vottað af óháðum aðila að sú afurð, sem boðin er til sölu hafi verið unnin úr hráefni, sem aflað hefur verið undir íslenskri fiskveiðistjórnun. Vottun af þessu tagi myndi vera stórt skref fram á við til þess að fullnægja þeim kröfum sem nú eru uppi á mörkuðum sjávarafurða. Í kjölfarið gætu framleiðendur svo fengið að nota sérstakt merki á afurðir sínar til staðfestingar því að þeim skilyrðum sé fullnægt.“

„Það er því mín trú að upp úr þessum öldudal muni okkur takast að sigla, þótt vænta megi ágjafar. Trú mín á íslenskan sjávarútveg og það fólk sem þar starfar er því sem fyrr algjörlega óbilandi.“

Úr ræðu Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva 28. september 2007