ÖGURVÍK HF.
ÖGURVÍK hf, sérhæfir sig í veiðum og sjávarafurðum.
ÖGURVÍK var stofnað árið 1971. Í upphafi var rekstur fyrirtækisins bundinn við útgerð tveggja togskipa.
Þessir togarar voru: ÖGRI og VIGRI, sem voru velþekktir í íslenska fiskiskipaflotanum.
Árið 1985 varð mikil breyting á rekstri fyrirtækisins. ÖGURVÍK keypti nýjan verksmiðjutogara, FRERA sem jók stórlega sóknargetu, afla og gæði aflans.
1992 keypti Ögurvík annan verksmiðjutogara, VIGRA, sem er meðal nútímalegustu og stærstu verksmiðjutogara íslenska flotans.
Sama ár opnaði ÖGURVÍK nýja sölu- og útflutningsskrifstofu. Þetta gerir okkur kleift að stjórna alfarið öllum rekstrarþáttum fyrirtækisins.. Við sjáum einnig um sölu og útflutning á vörum frá mörgum öðrum íslenskum fyrirtækjum í sjávarútvegi.
Við eigum einnig í samstarfi við erlendar birgja og útgerðir um markaðssetningu afurða þeirra.
ÖGURVÍK hefur einnig framleitt toghlera fyrir fiskiskip af öllum stærðum í gegnum dótturfyrirtæki sitt Hleragerðina. www.hlerar.is
Nú er ÖGURVÍK meðal stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands.
Helstu sjávarafurðir eru: þorskur, ýsa, ufsi, karfi, langa, steinbítur, grálúða, skarkoli, síld, loðna, rækja ásamt ýmsum öðrum tegundum.
Helstu viðskiptalönd Ögurvíkur eru: Stóra-bretland, Þýskaland, Danmörk, Finnland, Frakkland, Spánn, Portúgal, Grikkland, Ísrael, Bandaríkin, Japan, Taívan og Kórea.
Söluskrifstofa Ögurvíkur veitir þér allar upplýsingar um vörur okkar. Við viljum vekja athygli á því að við höfum hafið sölu á tilbúnum sjávarréttum frá ýmsum viðurkenndum framleiðendum.
Einnig getum við útvegað kaupendum ýmsar sjaldgæfar tegundir sjávarfangs.
Þér er velkomið að hafa samband og athuga hvað við getum gert fyrir þig.
Síminn er 562 9990, Fax 562 9998 eða sent okkur tölvupóst



